C. Orkuframleiðsla og smærri iðnaður |
Lýsing
C.5 Orkuskipti í framleiðslugreinum – ný aðgerð - Aðgerðin felur í sér að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis í framleiðslugreinum.Staða
Aðgerðin er í vinnslu.
Mörg tækifæri eru til að draga verulega úr eða skipta alveg út notkun jarðefnaeldsneytis í ýmsum framleiðslugreinum, s.s. í iðnaði, matvælaframleiðslu og atvinnustarfsemi sem tengist sjávarútvegi. Oft á tíðum þarf mjög litlar breytingar að gera á tækjum og búnaði til að ná fram miklum eldsneytissparnaði.
Þegar Orkusjóður auglýsti styrki til orkuskipta sumarið 2021 var ákveðið að leggja sérstaka áherslu á orkuskipti í framleiðslugreinum og veitti sjóðurinn styrki til slíkra verkefna með sjóðsúthlutun haustið 2021. Styrkir sjóðsins geta numið allt að 33% af stofnkostnaði við kaup á tækjum og búnaði.
Reiknað er með að þau verkefni sem Orkusjóður styrkti 2021 skili um 5.500 tonna CO2-ígildasparnaði. Styrkur til verkefnanna gerir það að verkum að þau verða mjög hagkvæm. Aðgerðin verður útfærð nánar og árangursmælikvarði settur.
Framkvæmd
-Ábyrgð
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Árangursmælikvarði
Unnið er að mótun árangursmælikvarða.