Verkefni
Áhersla verður lögð á að auka traust almennings á upplýsingatækni, persónuvernd og mikilvægi tjáningarfrelsis.
Ráðuneyti
Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðKafli
Stafrænar umbreytingar
Framvinda
Stöðugt hefur verið unnið að því að auka traust almennings á upplýsingatækni. Meðal aðgerða hafa verið áframhaldandi framkvæmd aðgerða í aðgerðaáæætlun stjórnvalda í netöryggismálum. Þá er háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið að fylgjast vel með þróun á sviði rafrænna auðkenninga og traustþjónustna, og þá sérstaklega breytingum á regluverki innan Evrópu (svokallað eIDAS2), en þróun á því sviði er til þess fallin að auka verulega traust í tengslum við viðskipti og veitingu þjónustu á netinu.Þá hefur ráðuneytið unnið að stefnumótunarvinnu í málefnum gervigreindar og vinna stendur nú yfir að útbúa aðgerðaáætlun í gervigreindarmálum. Auk þess hefur ráðuneytið hafið samtal við önnur ráðuneyti og haghafa um innleiðingu gervigreindarlöggjafar ESB, en gert er ráð fyrir að hún verði samþykkt ytra á vormánuðum 2024 og í kjölfarið tekin upp í EES samninginn.
Staða verkefnis
Komið vel á vegViðvarandi verkefni