B. Fræðsla og forvarnir |
Lýsing á aðgerð
Boðið verði upp á fræðslu um hinsegin málefni fyrir alla kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga.
Markmið aðgerðarinnar verði að auka þekkingu meðal kjörinna fulltrúa og starfsfólks sveitarfélaga um réttindi og félagslega stöðu hinsegin fólks.
Tímaáætlun: 2024–2025.
Ábyrgð: Innviðaráðuneyti.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Markmið 10.3 og 16.6.
Staða verkefnis í apríl 2024: Boðið hefur verið upp á fræðslu fyrir kjörna sveitarstjórnarfulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga. Þá hefur verið ýtt úr vör vinnu IRN, Hagstofu Íslands og Jafnréttisstofu við þróun mælaborðs á vegum Jafnréttisstofu um jafnréttismál í sveitarfélögum.
Ábyrgð
Innviðaráðuneytið
Komið vel á veg